Frönsk kona er í öndunarvél á sjúkrahúsi eftir að hún sýktist af hantaveirunni um borð í skemmtiferðaskipinu Hondius. Læknar konunnar segja hana mikið veika.Skemmtiferðaskipið Hondius.EPA / Ramon de la RochaÞrír farþegar á skipinu létust af völdum veirunnar og níu önnur tilfelli hafa verið staðfest. Allir farþegar hafa verið fluttir frá borði og smitrakning stendur yfir í nokkrum löndum. Hondius er á leið til Hollands þar sem skipið og farangur verða þrifin og sótthreinsuð.Tedros Ghebreyesus, forstjóri WHO, varar við því að fleiri tilfelli hantaveirunnar eigi eftir að greinast, en telur ekki hættu á að faraldur brjótist út. Embætti landlæknis Íslands fylgist enn grannt með stöðu mála.