Viðbótarkostnaður sem hlýst af ferðalögum fólks sem þarf að hafa með sér leiðsöguhund til útlanda verður endurgreiddur, samkvæmt ákvæðum nýrrar reglugerðar sem Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað.Hún nær til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur úthlutað sem hjálpartæki og tekur til þess kostnaðar sem skapast vegna skilyrða reglna um innflutning katta og hunda og einangrun þeirra.Ragnar Þór segir á vef Stjórnarráðsins að með reglugerðinni eigi að tryggja notendum leiðsöguhunda jafnræði við þátttöku í samfélaginu og auðvelda þeim ferðalög.Samkvæmt nánari útfærslu í reglugerðinni verða meðal annars endurgreidd gjöld tengd innflutningsleyfum, kostnaður vegna sóttvarnarráðstafana, einangrunar og skoðana dýralækna hérlendis og erlendis.Blindrafélagið sagði í um