Stjórnvöld í Kyrrahafseyríkinu Nárú hafa boðað að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um að opinberu heiti landsins verði breytt til forns ritháttar. Yfirvöld lýsa núverandi rithætti nafnsins sem minjum frá nýlendutímanum þegar erlend tungumál spilltu móðurmálinu.Útlendingar hafi ekki getað borið nafn landsins fram og því hafi breyting verið gerð þeim til hagsbóta en ekki að eigin vali eyjarskeggja.Opinbera heitið verður Naoero samkvæmt yfirlýsingu forsetans David Adeang, sem heiðri arfleifð þjóðarinnar, tungumál hennar og sjálfsmynd. Eitt sinn var Nárú þekkt undir heitinu Sælueyja.Verði tillagan samþykkt og stjórnarskránni breytt verða nýtt heiti og einkennisstafir landsins tekin upp jafnt innanlands sem á alþjóðavettvangi, til að mynda innan Sameinuðu þjóðanna.Næstum allir tíu þúsund íbúa