Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump birtir kort sem sýnir Venesúela sem 51. ríki Bandaríkjanna

Donald Trump Bandaríkjaforseti birti teiknað kort af Venesúela á samfélagsmiðlinum Truth Social í nótt þar sem landið var hulið bandaríska fánanum og merkt 51. ríkið. Trump birti færsluna meðan hann var á leið til Kína til fundar við forsetann Xi Jinping, nokkrum klukkustundum eftir að Delcy Rodriguez, sitjandi Venesúelaforseti, sagði af og frá að landið yrði hluti Bandaríkjanna. Trump hafði þá skömmu áður sagst íhuga að innlima Venesúela og hann hefur mánuðum saman sagst ráða yfir olíuauðugu landinu. Bandarískir hermenn námu forsetann Nicolas Maduro og forsetafrúna Ciliu Flores á brott í janúarbyrjun. Þá komst varaforsetinn Rodriguez til valda og síðan þá hefur orðið nokkur þíða í samskiptum við Bandaríkin. Ríkisstjórnin hefur einnig gert erlendum fyrirtækjum auðveldara fyrir um olíuvinns
Trump birtir kort sem sýnir Venesúela sem 51. ríki Bandaríkjanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta