Hengillinn. Ekki hafa borist tilkynningar um að jarðsjálftinn hafi fundist í byggð.Kristinn Þeyr MagnússonJarðskjálfti sem mældist um þrír komma sex varð á Mosfellsheiði um klukkan hálf eitt og honum hafa fylgt nokkrir eftirskjálftar að sögn Jóhönnu Malenar Skúladóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Þetta er stærsti skjálftinn sem mælst hefur þar um slóðir síðan í apríl 2021 þegar jafnstór skjálfti varð. Jóhanna Malen segir svæðið mjög virkt. Veðurstofu hafa ekki borist tilkynningar um að jarðskjálftinn hafi fundist í byggð.