Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íranir segja Bandaríkin þurfa að samþykkja friðartilboð eða hljóta afhroð ella

Mohammad Bagher Ghalibaf, þingforseti og helsti samningamaður Íransstjórnar, segir að Bandaríkin verði að samþykkja nýjustu friðaráætlun Írana í fjórtán liðum eða hljóta afhroð ella.Helstu ákvæðin væru um lok stríðsins á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon, losun hafnbanns Bandaríkjanna og að frystingu íransks fjármagns erlendis linni. Ghalibaf lýsti þessu yfir á X skömmu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti staðhæfði að vopnahléð væri að renna út í sandinn og að tillögur Írana væru algerlega óásættanlegar.Sigur Bandaríkjanna væri í sjónmáli. Þau viðbrögð urðu til þess að olíuverð hækkaði á mörkuðum.Íranski byltingarvörðurinn hefur haldið æfingar í Teheran sem ætlað er að mæta öllum atlögum Bandaríkjamanna og Ísraela að sögn ríkismiðla landsins. Hvorugt ríki hefur viljað slaka nokku
Íranir segja Bandaríkin þurfa að samþykkja friðartilboð eða hljóta afhroð ella

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta