Höggmyndirnar eru komnar heim. Þá er átt við risavaxna skúlptúra listamannsins Jóhanns Eyfells en 16 tonn af skúlptúrum bárust á dögunum yfir hafið og heim. Þar voru á ferðinni verk höggmyndalistamannsins Jóhanns Eyfells, komin alla leið frá Texas til að prýða sali Listasafns Íslands.Jóhann er einn ástsælasti höggmyndalistamaður Íslendinga. Hann bjó í Texas þar sem hann hafði komið sér fyrir á búgarði með stúdíó og safn verka sinna. Hann féll frá árið 2019, þá 96 ára gamall, en sinnti listinni fram á síðasta dag. Frá þeirri stundu hófst vinna við að koma umfangsmiklu safni verka hans til Íslands. Fyrir flutningunum fór sonur Jóhanns, Ingólfur Eyfells.„Þetta er stór stund fyrir okkur erfingja Jóhanns Eyfells, við erum núna að opna gáma sem eru komnir hingað alla leið frá Texas.“Þar að auki