„Það var á mörkum þess að það væri snjólaust, ég nennti ekki að keyra, þannig að það var bara þægilegt að taka strætó norður í Varmahlíð,“ segir Helgi Hólm sem sló fjögur Íslandsmet í aldursflokki 85 ára og eldri og er í öðru sæti í hástökki í heiminum í sínum aldursflokki í stökkmótaröðinni í atrennulausum stökkum og hástökki með atrennu.