Formaður Dýraverndarsambands Íslands kveðst ekki trúa því að íslensk dýraverndarsamtök standi að baki innbroti í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi. Brotist var inn í svínabúið aðfaranótt mánudags og svínum hleypt út. Tíu grísir drápust.„Íslensk dýraverndarsamtök vinna málefnalega og ég vil að það komi skýrt fram að Dýraverndarsamband Íslands styður ekki svona verknað. Þetta er ekki málefnaleg nálgun og er ekki málstað dýraverndar til framdráttar,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands.Hún segir að lögregla þurfi svigrúm til að rannsaka málið og komast að því hver beri ábyrgð á verknaðinum og hver tilgangur hans hafi verið.Linda Karen segir að kerfisbundin vandamál séu til staðar í svínarækt, dýrin geti ekki notið eðlislægs atferlis síns í verksmiðjubúskap og