Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í fyrrinótt og miklar skemmdir unnar á skrifstofu og í svínahúsum. Tíu grísir drápust og aflífa þurfti einn. Bréf var skilið eftir sem forstjóri segir að bendi til þess að dýraverndarsinnar hafi verið að verki.„Hér var búið að brjóta upp hurðina. Hún stóð upp á gátt. Og svo var brotist líka inn á hliðinni á húsinu, þar sem dýrin voru rekin út eða komust út í kjölfarið,“ segir Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss.Hann segir aðkomuna hafa verið skelfilega.„Það voru nokkrir dauðir grísir eftir nóttina og einn var aflífaður út af kjálkabroti. Hér eru dýr hölt og rispuð eftir átök næturinnar og svo hafa orðið tvö fósturlát líka í kjölfarið. Næstu daga og vikur kemur þetta betur í ljós, þetta á eftir að draga dilk á eftir sér.“