Kappræður Heimildarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar fara fram í beinni útsendingu frá Tjarnarbíói í kvöld frá 20.00 til 21.30. Þar mætast oddvitar allra framboða sem mælast með yfir 1,5% fylgi í skoðanakönnunum. Umræðustjóri er Aðalsteinn Kjartansson, aðstoðarritstjóri Heimildarinnar. Bein útsending verður í opinni dagskrá í boði Hringdu, en áskrifendur Heimildarinnar geta horft á kappræðurnar hvenær sem er á vefnum.