Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks telja þéttingu byggðar í miðborginni misheppnaða. Breyta þurfi um stefnu. Oddviti Samfylkingar er ánægður með hvernig til hefur tekist. Fólk hefur áhyggjur þvert á flokka af háu íbúðaverði á svæðinu.