Húsnæðisuppbygging er á meðal þeirra mála sem eru ofarlega í huga kjósenda nú þegar örfáir dagar eru til sveitarstjórnarkosninga. Berghildur Erla, fréttakona okkar, ræddi við oddvita framboðanna í borginni og spurði þá út í þéttingarstefnuna og húsnæðisuppbyggingu. Þrír oddvitar segja þéttingarstefnuna komna út í skurð.