Fyrri undankeppni Eurovision fer fram í Vín í Austurríki í kvöld. Mikill viðbúnaður er í miðborginni vegna þátttöku Ísraels.Linda Karen Kettler starfar fyrir austurrísku sjónvarpsstöðina Servus TV sem sendir út fréttir frá keppninni. Að sögn Lindu er mikill titringur vegna þátttöku Ísraels - sem stígur á svið í kvöld.„Ég sá þetta einmitt þegar ég var á leiðinni hingað sjálf. Ég fór í neðanjarðarlestinni og það eru öryggisverðir með tuttugu metra millibili og þetta er allt mjög dempað. Þetta er ekki það sem maður myndi búast við á tónlistarviðburði. Mér finnst það svolítið sláandi hvað tilfinningin í kringum þetta er pólitísk.“Tilkynnt hefur verið um fjölda skipulagðra mótmæla, bæði af hálfu stuðningsmanna Ísraels og Palestínu. Linda vonast til þess að keppnin fari friðsamlega fram.„Maður n