Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ákærð fyrir umsáturseinelti gagnvart þremur mönnum

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært konu fyrir umsáturseinelti gegn þremur mönnum og aðstandendum þeirra. Hún er einnig ákærð fyrir rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot.Konan komst síðast í fréttir í apríl þegar hún var handtekin eftir að hún sendi inn falska dánartilkynningu um einn mannanna í Morgunblaðið, en áður höfðu Vísir og Heimildin, meðal annarra fjölmiðla, fjallað um umsáturseineltið.Ákæran, sem fréttastofa hefur undir höndum, er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir eru á sjöunda tug. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á morgun. Konan er meðal annars ákærð fyrir umsáturseinelti gagnvart dætrum tveggja manna, sem báðar eru á unglingsaldri. MEÐ „FÓSTUR“ Í KRUKKU OG LÉT MAKA SKÍT Á HURÐARHÚN Umsáturseineltið gagnvart
Ákærð fyrir umsáturseinelti gagnvart þremur mönnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta