Metþátttaka var í götugöngu Virkni og vellíðan sem haldin var í fjórða sinn í dag, þriðjudaginn 12.maí. Hröðustu göngugarparnir voru þau Fríða Björk Gunnarsdóttir og Sverrir Davíð Hauksson en þau unnu einnig aldursflokkaverðlaun 70-80 ára. Tæplega 400 tóku þátt og var í fyrsta sinn boðið upp á tvær vegalengdir, 1,5 km og 3,4 km hring. Lesa meira