Skemmdarverk hafa verið unnin á nær öllum bílum og öðrum farartækjum á geymslusvæði Strandabyggðar við Hnitbjörg á Vestfjörðum. Hafa flestar rúður ökutækjanna verið brotnar og er ljóst að einbeittur brotavilji hafi verið til staðar þegar skemmdirnar voru unnar.