Gimbur, sem var að koma í heiminn á bænum Dalatanga í Mjóafirði er með svo sérstakan lit í andlitinu að það er ekki hægt að nefna hann nafni svo vitað sé til. „Hún hefur fengið nafnið Sérstök hjá mér og er undan mórauðri kind, sem heitir Fura og svörtum hrút sem heitir Djákni. Hún er sjálf dökkmórauð með ljósmórauðan blett í andliti. Við höfum aldrei fengið svona litasamsetningu áður en við erum með um 100 kindur,” segir Aðalheiður Elfríð Heiðarsdóttir, sauðfjárbóndi. „Mamma tók við búinu þegar foreldrar hennar hættu og fluttu í burtu, svo það er búið að vera í fjölskyldunni í alveg nokkur ár. Amma og afi, Elfríð Pálsdóttir og Erlendur Magnússon, fluttu hingað árið 1968 en þá var mamma 8 ára,” segir Aðalheiður.