Albani á fertugsaldri hringdi í neyðarlínuna aðfaranótt mánudags, tilkynnti að hann væri staddur á Íslandi ólöglega og bað um að verða vísað úr landi. Hann óskaði eftir fundi við lögreglu sem hitti hann á bensínstöð á Vogum á Vatnsleysuströnd. Maðurinn gat ekki framvísað skilríkjum og var handtekinn.Þetta staðfestir Bjarney S. Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, við fréttastofu.„Það hljóta að vera einhverjar persónulegar ástæður hjá honum,“ segir hún spurð af hverju maðurinn hafi beðið um að vera brottvísað. Hún kveðst ekki muna eftir því í fljótu bragði að eitthvað þessu líkt hafi komið fyrir áður.Maðurinn var með dvalarleyfi en það rann út í fyrra. Bjarney segir að maðurinn hafi á meðan það var gilt komið til kasta lögreglunnar, meðal annars fyrir ofbeldisbrot.