Fjöldi þeirra þingmanna breska Verkamannaflokksins sem vilja að leiðtoginn og forsætisráðherrann Keir Starmer fari frá er kominn upp í 86. Að sama skapi hafa yfir 100 þingmenn flokksins skrifað undir yfirlýsingu um stuðning við hann.John Curtice, prófessor í stjórnmálafræði og stjórnmálaskýrandi hjá breska ríkisútvarpinu, segir Starmer aldrei hafa verið vinsælan leiðtoga. Fólk átti sig ekki á því hver framtíðarsýn hans sé.Hart hefur verið sótt að Keir Starmer síðustu dag eftir slakt gengi í sveitarstjórnarkosningum í síðustu viku. Fjórir undirráðherrar hafa sagt af sér í dag. SLAGORÐIÐ VAR BREYTINGAR EN LÍTIÐ VITAÐ HVAÐA BREYTINGAR Curtice sagði í viðtali við fréttastofu í dag að helsta ástæða þess að svo hart væri sótt að Starmer væri sú að hann hafi aldrei verið vinsæll leiðtogi. Það