Hart er sótt að frelsi og sjálfstæði fjölmiðla um heim allan. Stjórnvöld og stórfyrirtæki, auðkýfingar og einvaldar, glæpagengi og löggæslustofnanir taka þátt í þessari aðför og sækist hún giska vel.Þannig reiknast sérfræðingum alþjóðlegu V-Dem - rannsóknastofnunarinnar í lýðræðismálum, sem er með höfuðstöðvar sínar í Gautaborgarháskóla, svo til, að fjölmiðlafrelsi hafi minnkað um tíu prósent á síðustu rúmlega tíu árum.Niðurstöður nýjustu rannsóknar alþjóðlegu samtakanna Blaðamenn án landamæra eru á svipuðum nótum; samkvæmt henni er staða frjálsra fjölmiðla og fréttamennsku ýmist „erfið“ eða „mjög alvarleg“ í meira en helmingi allra landa heims.Þetta mikla bakslag á sér aðeins þrjár hliðstæður frá upphafi tuttugustu aldar; í heimstyrjöldunum tveimur og svo undir lok áttunda áratugarins, þe