Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ömurleg“ aðkoma á geymslusvæði Strandabyggðar

Skemmdir hafa verið unnar á bílum og öðrum farartækjum á geymslusvæði Strandabyggðar við Hnitbjörg á Vestfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Strandabyggðar. Þar segir að aðkoman á svæðinu sé „vægast sagt ömurleg.“ Rúður hafi verið brotnar, glerbrot liggi á víð og dreif og að ljóst sé að skemmdarvargarnir hafi verið með einbeittan brotavilja.„Hvað sem fólki kann að finnast um það sem þarna er til geymslu þá eru þetta eignir íbúa sem þeir geyma á afmerktum svæðum og greiða fyrir það gjald og það er lágmark að fólk geti verið öruggt með sínar eignir þarna,“ segir í tilkynningunni.Málið hefur verið tilkynnt til lögreglunnar á Vestfjörðum. Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Ísafirði, segir málsatvik enn óljós.„Það er ekki vitað nákvæmlega hvenær þetta átti sér stað en þetta e
„Ömurleg“ aðkoma á geymslusvæði Strandabyggðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta