Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íbúum fækkar á Norðurlandi vestra

Íbúum á Íslandi fjölgaði um 520 á fyrsta ársfjórðungi og hlutfallslega mest á Suðurlandi, eða um 1,1%. Fjölgun var í öllum kjördæmum landsins, nema á Norðurlandi Vestra, þar sem íbúum fækkaði um 0,4%. Á Skagaströnd fækkaði íbúum um 5, eða um 1,1% og hefur íbúum þar farið fækkandi síðan 2021. Mesta fækkunin var í Skagafirði þar sem íbúum fækkaði um 12.„Ég er ekkert mjög áhyggjufullur yfir þessu núna. Við höfum áður séð sveiflur innan ára og ef þú myndir tala við í mig aftur í lok árs og það væri áfram fækkun hefði ég áhyggjur af þessu,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar. NORÐURLAND VESTRA UNDIR LANDSMEÐALTALI Ef horft er aftur til ársins 2019 hefur íbúum á Norðurlandi vestra fjölgað, en aðeins um 351 eða um 4,85%. Er það töluvert undir landsmeðaltali.„Ég hef meiri á
Íbúum fækkar á Norðurlandi vestra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta