Íþrótta- og heilsufræðingur segir börn vera rænd því að taka áhættur og því að læra af þeim. „Áhættuleikur er á undanhaldi sem og frjáls leikur barna. Fyrir mig að lesa frétt um að börn séu að byggja kofa í Vesturbænum er fagnaðarefni,“ sagði Sabína Steinunn Halldórsdóttir í Morgunútvarpinu á Rás 2 fyrr í dag.Fjallað hefur verið um áform Reykjavíkurborgar um að fjarlægja kofa sem börn byggðu í sameiningu við Lynghaga í Vesturbæ Reykjavíkur. Ástæðan er sú að hann er ekki öryggisvottaður. Börn í hverfinu hafa mótmælt þessu harðlega.Sabína segir að gera eigi allt til að auka frjálsan leik, þar sem hugmyndaflug og tilraunir barna fá að njóta sín. „Hann hefur gríðarleg áhrif á alla heilsuþætti barna – líkamlega, andlega og félagslega heilsu.“Hún segir mikilvægt að staldra við og spyrja hvort þa