Hljómsveitarmeðlimir segja nýja lagið fjalla um þá tilfinningu að vera sannfærður um að maður sé við það að ná markmiði, þó að raunveruleikinn segi annað. „Í textanum er fylgt eftir manni sem eltir konu sem hefur engan áhuga, á meðan hann sannfærir sjálfan sig um að hann sé nánast kominn á leiðarenda. Útkoman er beitt og kunnugleg mynd af sjálfsblekkingu og bili milli skynjunar og raunveruleika.“Mukka er tilraunakennd hljómsveit frá Reykjavík sem blandar saman lo-fi rafhljóðum, sækadelísku rokki og kraut-innblásinni endurtekningu í dáleiðandi hljóðheim. Sveitin var stofnuð árið 2017 af Guðmundi Óskari Sigurmundssyni og Kristjóni Hjaltested og hefur þróast úr dúói í fimm manna band með áherslu á lifandi, yfirgripsmikla tónleikaupplifun.