Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hinn fullkomni víkingur

Haukur Þorgeirsson skrifar:Hinn voldugi Eiríkur jarl Hákonarson kemur fyrir í Gunnlaugs sögu. Þar er því lýst hvernig Gunnlaugur ormstunga gengur fyrir jarlinn með sull á fæti. Gunnlaugur skáld er hvatvís unglingur, honum sinnast hratt við Eirík og hirð hans og er beðinn að verða á brott sem skjótast.Þótt Gunnlaugur yrði ekki skáld hjá Eiríki Hákonarsyni er ekki hægt að saka jarlinn um að halda úti menningarsnauðri hirð. Konungasögurnar vitna í margar vísur eftir skáld Eiríks og þá einkum þrjú þeirra: Halldór ókristna, Eyjólf dáðaskáld og Þórð Kolbeinsson. Ég ætla að tala svolítið um verk þessara manna og þá mynd sem þau gefa af Eiríki jarli og lífi norræns höfðingja við upphaf 11. aldar.Um ævi eða ætt Halldórs ókristna eru ekki til neinar heimildir. Við vitum aðeins að hann orti kvæði um
Hinn fullkomni víkingur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta