Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mun fleiri teknir fyrir að gera aðra út í vændi

160 voru grunaðir um vændiskaup á tímabilinu 2020 til apríl á þessu ári, samkvæmt svörum ríkislögreglustjóra við fyrirspurn fréttastofu. Þar af komu upp 44 mál í fyrra, fleiri en árin á undan.„Þetta er í samræmi við það sem við erum að sjá, þessum málum fer fjölgandi,“ segir Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Af málunum 160 hafa 57 verið sektaðir og 13 mál send til ákærusviðs, þar sem ákvörðun er síðan tekin um hvort ákæra er gefin út. Vert er að taka fram að í einhverjum málanna stendur rannsókn enn yfir og því óvíst hver lyktir þeirra verða.Þrátt fyrir að fleiri mál komi upp en leiði til sekta eða hugsanlegrar ákæru segir Hildur Sunna þetta ekki þýða að meirihluti málanna dagi uppi.„Það fer eftir því hvernig málin koma til okkar hvernig
Mun fleiri teknir fyrir að gera aðra út í vændi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta