„Ég sendi hér póstkort af næturvakt í fjárhúsunum á Borgarfirði eystra,“ segir Aldís Fjóla við hlustendur Popplands þar sem hún kynnir nýtt lag. Lagið sem heitir Rauðarok er lag eftir Halldór Sveinsson með texta eftir Aldísi og er þriðja lagið af væntanlegri plötu þeirra. „Textinn fjallar um að standa af sér þá storma sem koma upp hjá okkur og halda áfram“ segir Aldís Fjóla. Um upptöku sá Stefán Örn Gunnlaugsson í Stúdíó Bambus og Sigurdór Guðmundsson hjá Skonrokk Studios masteraði.Hlustaðu á lagið í spilaranum að ofan.