Stjórnendur Instructure, fyrirtækisins sem rekur námsumsjónarkerfið Canvas, segjast hafa tryggt að hakkarar sem brutust inn í kerfið dreifi ekki upplýsingum sem þeir komust yfir.Þetta segja stjórnendur Instructure í færslu þar sem þeir greina frá samkomulagi sem þeir komust að við hakkarana. Þeir segja að hakkararnir hafi skilað gögnum sem þeir komust yfir og sýnt fram á að þeir hafi eytt skjölum hjá sér. Jafnframt hafi hakkararnir heitið því að kúga ekki fé út úr viðskiptavinum Instructure. Ekki kemur fram í tilkynningu Instructure hvað fyrirtækið greiddi hökkurunum.Sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands sendi nemendum og kennurum tilkynningu í hádeginu þar sem hún greindi frá samkomulaginu.„Þó að aldrei sé hægt að útiloka alla áhættu í slíkum tilvikum benda fyrirliggjandi upplýsingar t