Verðbólgan í Bandaríkjunum var 3,8 prósent í apríl og hefur ekki verið meiri í þrjú ár. Verðbólgan jókst um hálft prósentustig milli mánaða.Aukin verðbólga er ekki síst rekin til stríðsins við Íran og áhrifa þess á olíudreifingu frá Persaflóa. Vísitala orkuverðs í Bandaríkjunum hækkaði um 17,9 prósent milli ára. Það er mesta hækkun allra undirflokka verðbólgunnar. Maður fyllir á tank flutningabíls í Texas í Bandaríkjunum.EPA / FAZRY ISMAIL