Ofurhlauparinn Karlotta Ósk Óskarsdóttir hljóp tæplega 750 kílómetra í tíu daga hlaupi í Búlgaríu. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á síðustu níu mánuðum og er hvergi nærri hætt.Keppendur hlaupa eins langt og þeir geta á tíu dögum, á 785 metra langri braut, og mega hvíla sig inn á milli til að safna kröftum. Hlaupið, sem kennt er við friðarpostulann Sri Chinmoy, fór fram í almenningsgarði í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu. SLÓ ÞRJÚ ÍSLANDSMET Í VIKUNNI Karlotta Ósk hljóp 742,6 kílómetra og sló þar með þrjú Íslandsmet. Hún hljóp lengstu vegalengd sem Íslendingur hefur farið í keppnishlaupi og sló Íslandsmet í 48 tíma og 72 tíma hlaupi. Þrátt fyrir að hafa upplifað mikinn sársauka og þreytu í hlaupinu líður Karlottu ágætlega.„Ég hef eiginlega bara oft verið miklu verri. Reyndar eru lappirnar all