Fasteignaþróunarfélagið Laufdal ehf. og Drangar hf., sem meðal annars eiga og reka Nettó, Orkuna og Prís, hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Verkefnið, sem kallast Miðtún 1, mun meðal annars fela í sér byggingu um 700 fermetra atvinnuhúsnæðis, enda er þar vaxandi þörf fyrir verslun og þjónustu að því er fram kemur í tilkynningu.Viljayfirlýsingin markar upphaf formlegra viðræðna um frekari þróun verkefnisins. Miðtún 1 er hluti af stærra þróunarverkefni þar sem unnið er að uppbyggingu verslunar, þjónustu og ferðaþjónustu.Félögin gera ráð fyrir samræmdri tímaáætlun um skipulag og framkvæmdir, auk viðræðna um frekari uppbyggingu.