Tíu grísir drápust þegar brotist var inn í svínabú Stjörnugríss og dýrum sleppt út. Framkvæmdastjóri segir aðkomuna hafa verið hræðilega þegar starfsmenn fyrirtækisins komu að svínabúinu snemma á mánudagsmorgun.„Dýrin voru bara úti um allt. Smágrísir og gyltur, öllu blandað saman og svo kannski það sem er kannski þungbærast í þessu, bara dauðir grísir og fósturlát og ýmislegt annað sem blasti við,“ segir Geir Gunnar Geirsson, framkvæmdastjóri Stjörnugríss.Dýrin voru í goti og segir Geir að bæði grísir og gyltur séu mjög viðkvæm á þeim tíma, sérstaklega þar sem brotist hafi verið inn að nóttu til þegar dýrin voru í hvíld.Töluvert eignatjón hafi orðið en það eigi eftir að koma betur í ljós á næstu dögum og vikum. Geir segir að dýrin séu honum þó efst í huga.Í tilkynningu frá Stjörnugrís segi