Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir eðlilegt að flokkar geri kjósendum skýra grein fyrir afstöðu sinni til sölu á orkuinnviðum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Hann segir umræðu um einkavæðingu fyrirtækja á borð við Rarik og Landsnet snerta hagsmuni íbúa víða um land og telur mikilvægt að línurnar liggi skýrt fyrir áður en gengið verður til kosninga.