Útlit er fyrir hvassa vindstrengi undir Eyjafjöllum og í Öræfum síðdegis og fram á kvöld. Vakthafandi veðurfræðingur varar við því að vindurinn verði það ákafur að hann reynist varasamur fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.Norðlæg átt verður ríkjandi í dag og víðast verður vindstyrkurinn á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu. Mun hvassara verður þó syðst og austan öræfa síðdegis, samkvæmt veðurspánni. Bílar á ferð undir Eyjafjöllum. Safnmynd.Víðir Hólm Ólafsson