Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags.Í tilkynningu segir fyrirtækið að tvær hurðir hafi verið brotnar upp og miklar skemmdir unnar bæði á skrifstofuaðstöðu fyrirtækisins og svínabúum þess.Innréttingar voru rifnar upp, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar með þeim afleiðingum að dýr gengu laus um húsin. Sum þeirra gengu út á tún í slagviðri og myrkri.Alls drápust tíu smágrísir og þurfti að aflífa einn vegna kjálkabrots. Fjölmargar gyltur eru með áverka og hefur eitt fósturlát orðið. Margar þeirra eru haltar og rispaðar.Stjörnugrís telur að búast megi við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, mjólkurmissis hjá gyltum og mögulegra fleiri fósturláta.Málið hefur verið kært til lögreglu og er nú til rannsóknar