Hinsegin bókmenntir, langborðsumræður, fræðadagskrá og fjölbreyttur hópur alþjóðlegra höfunda mætir gestum bókmenntahátíðarinnar Queer Situations dagana 14.- 17. maí. Hátíðin verður sett í Tjarnarbíói með fræðadagskrá og sviðslistaverki og færist svo yfir í Salinn í Kópavogi.Hátíðin hóf göngu sína 2024 og er nú haldin í annað sinn. Markmiðið er að dæla súrefni fjölbreyttra radda inn í íslenskt bókmenntaumhverfi. Áhersla er lögð á bókmenntir hinsegin höfunda jafnt sem bókmenntir sem falla fyrir utan meginstrauminn.Lóa Björk Björnsdóttir ræddi við Evu Rún Snorradóttur og Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur, skipuleggjendur hátíðarinnar, í Lestinni á Rás 1. EINS OG MENNINGARLEG ÚTIHÁTÍÐ Í KÓPAVOGI Segja má að hátíðin sé eins konar tvíæringur þar sem Halla og Eva Rún ákváðu strax í upphafi að halda