Hamas og bandamenn þeirra beittu gísla sína kerfisbundnu og umfangsmiklu kynferðisofbeldi eftir árásirnar á Ísrael 7. október 2023. Þetta kemur fram í skýrslu sem er unnin af sjálfstæðri ísraelskri rannsóknarnefnd. AFP fréttaveitan greinir frá.Rannsókn nefndarinnar leiddi í ljós að Hamas-liðar og bandamenn þeirra beittu gísla kynferðisofbeldi og pyntingum á mörgum mismunandi stöðum, þegar þeim var rænt, í flutningum á milli staða og á meðan þeir voru í haldi. Ofbeldið einkenndist af mikilli grimmd og þjáningu og var beitt til ógna og niðurlægja.Rannsakendur byggja gögn sín á vitnisburði vitna, gísla og sérfræðinga, og miklu magni upplýsinga, ljósmyndum og myndskeiðum. Rannsóknarnefndin segir ofbeldið vera stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð samkvæmt alþjóðalögum.Ísraelar gagnrýn