Laxaseiði sluppu úr laxeldisstöð í Kelduhverfi í Norðurþingi í síðustu viku. Ekki liggur fyrir hversu mörg seiði sluppu úr kerinu en rekstrarleyfishafinn á staðnum, Kaldakvísl ehf., náði að fanga 50 seiði sem höfðu sloppið. Að sögn Karls Steinars Óskarssonar, deildarstjóra fiskeldis hjá Matvælastofnun, er rannsókn á strokinu í fullum gangi en nákvæmur fjöldi seiðanna sem sluppu kemur ekki í ljós fyrr en talið er upp úr kerinu.Búnaður bilaði þannig að laxarnir sluppu úr kerinu í settjörn. Þar er seinni vörn fyrirtækisins gegn stroki og telja stjórnendur fyrirtækisins hverfandi líkur á að seiðin hafi komist út í sjó. Fyrirtækið virkjaði strax viðbragðsáætlun til að koma í veg fyrir frekara strok. MÁLIÐ LITIÐ ALVARLEGUM AUGUM Meðalþyngd seiðanna var rúm 92 grömm og voru því þau að öllum lí