Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Víða strekkingsvindur

Heldur hvasst verður víðast hvar á landinu í dag og á norðanverðu landinu er útlit fyrir allnokkra úrkomu. Á láglendi rignir og gæti jafnvel orðið slydda en þegar komið er upp í 200 til 300 metra hæð er viðbúið að snjór falli til jarðar.Léttskýjað verður sunnanlands og suðaustan til verður allt að þrettán stiga hiti.Veðurspáin er svohljóðandi:Hægt vaxandi norðlæg átt, átta til fimmtán metrar á sekúndu með morgninum, en mun hvassari syðst og austan Öræfa síðdegis. Rigning eða slydda með köflum norðan- og austanlands, en yfirleitt rigning með ströndinni og snjókoma til fjalla. Bjartviðri sunnan heiða. Hiti 3 til 12 stig, mildast syðst, en um frostmark í innsveitum norðantil.Lægir í nótt, breytileg átt þrír til tíu á morgun. Skýjað og allvíða dálítil væta. Hiti 4 til 10 stig, svalast norðaust
Víða strekkingsvindur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta