Fjármálaráðuneytið afmáði hvern staf í tölvupóstum Nasdaq-verðbréfamiðstöðvar, þ.e. kauphallarinnar, sem Morgunblaðið óskaði eftir og vörðuðu upplýsingagjöf Þórðar Snæs Júlíussonar, framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar, í tengslum við bankaskattinn. Morgunblaðið hefur kært afmáninguna til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.