Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkjastjórn vill opna þrjár herstöðvar á Suður-Grænlandi

Bandaríkin og Danmörk hafa átt reglulegar viðræður undanfarna mánuði um aukna viðveru bandaríska hersins á Grænlandi. Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir nokkrum heimildarmönnum að bandarískir embættismenn vilji opna þrjár nýjar herstöðvar á Suður-Grænlandi.Bæði Hvíta húsið og danska utanríkisráðuneytið hafa staðfest að viðræður séu í gangi án þess að vilja gefa meira upp um innihald þeirra. Stjórnvöld í Danmörku höfðu áður lýst yfir vilja til að ræða fjölgun bandarískra herstöðva á Grænlandi.Ætla að sinna eftirliti með skipaumferð frá herstöðvunumLíklega verður fyrrum bandarísk herstöð í Narsarsuaq opnuð á ný og hinar herstöðvarnar verða líklega staðsettar þar sem innviðir eru til staðar, líkt og flugvellir og hafnir, sem hægt væri að byggja upp enn frekar.BBC hefur eftir heimildarmönnum
Bandaríkjastjórn vill opna þrjár herstöðvar á Suður-Grænlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta