Andríj Jermak, fyrrum skrifstofustjóri forsetaskrifstofu Úkraínu, hefur verið ákærður fyrir spillingu. Kyiv Independent greinir frá því að Jermak sé ákærður fyrir peningaþvætti í tengslum við byggingu lúxusíbúða fyrir utan Kyiv.Samkvæmt Spillingarrannsóknarstofnun Úkraínu, NABU, og embætti sérstaks saksóknara gegn spillingu, SAPO, er Jermak grunaður um að hafa þvætt um 8,9 milljónir dollara í tengslum við verkefnið í gegnum skúffufyrirtæki, millifærslur og skjalafölsun.Hann er einnig til rannsóknar vegna tengsla hans við umfangsmikið spillingarmál tengt ríkisfyrirtækinu Energoatom. Talið er að hópur manna hafi neytt fyrirtæki til að greiða sér um 100 milljónir dollara undir borðið til að missa ekki viðskiptasamband. Níu manns hafa verið ákærðir fram til þessa vegna Energoatom-málsins.Jerma