Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá samningi um orkusáttmála (Energy Charter Treaty, ECT) í ljósi þess að samningurinn gengur gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um orkufullveldi og sjálfsákvörðunarrétt íslenskra stjórnvalda í orkumálum. Ráðherra segir engan samning hafa orðið grundvöllur eins margra gerðarmála alþjóðlegra stórfyrirtækja gegn fullvalda ríkjum.