Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Ísland hefur sagt sig frá orkusáttmálanum ECT (Energy Charter Treaty). Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir hann ganga gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um orkufullveldi og sjálfsákvörðunarrétt íslenskra stjórnvalda í orkmálum. Hann segir löngu tímabært að segja Ísland úr samningnum og skilur raunar ekki af hverju hann var fullgiltur árið 2015.„Þetta er sáttmálinn sem hefur fyrst og fremst verið notaður af alþjóðlegum stórfyrirtækjum til þess í rauninni að hindra ríki í að beita sínum sjálfsákvörðunarrétti í orkumálum,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að Ísland hafi undirritað sáttmálann 1994 og fullgilt hann 2015. Markmið samningsins sé meðal annars að tryggja fjárfestavernd og liðka fyrir óheftum viðskipt
Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta