Andrými fékk Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026, sem afhent voru af Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra í Höfða fyrr í dag. Andrými fékk verðlaunin fyrir einstakt framtak sjálfboðaliða sem útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að skipuleggja baráttu fyrir auknu jafnrétti og frelsi jaðarsettra hópa.Mannréttindaverðlaunin eru veitt einstaklingum, félagasamtökum og stofnunum sem hafa staðið vörð um mannréttindi á árinu á eftirtektarverðan hátt. Mannréttindaráð staðfesti á fundi sínum tillögu valnefndar um að Andrými hlyti verðlaunin, sem nema 600.000 krónum.Elí Hörpu- og Önundarbur tók við verðlaununum fyrir hönd Andrýmis. Elí segir verðlaunin mikilvæg fyrir Andrými og þá mikilvægu vinnu sem þar fer fram. „Í Andrými er lögð áhersla á að sporna gegn einmanaleika og