Rangir skammtar af þyngdarstjórnunarlyfjum geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér og leitt til álags á ýmis líffæri, segir innkirtlalæknir. Varasamt sé að taka inn slík lyf án handleiðslu læknis. „HVAÐAN KOMA ÞESSI LYF“ Lyfseðilsskyld lyf á borð við Ozempic og Wegovy ganga kaupum og sölum á samfélagsmiðlum – og líkt og fram kom í fréttum í gær hefur nýtt efni sem á að stuðla að hröðu þyngdartapi rutt sér til rúms, tilraunalyfið Retatrutide, eða Reta, sem ekki er komið á markað.„Þannig að ef það er verið að selja það einhvers staðar þá er ekki líklegt að það sé lyf sem er rétt framleitt. Það er líka þannig að þetta hefur ekki verið náttúrulega í notkun. Það eru engir læknar hér á landi sem eru vanir að nota þessi lyf,“ segir Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir, innkirtlalæknir og yfirl