Vopnahlé milli Íran og Bandaríkjanna er í bráðri hættu samkvæmt Bandaríkjaforseta og lítið sem bendir til að samningar um frið náist í bráð.Í gær bárust svör Íransstjórnar við tillögum Bandaríkjanna að samkomulagi. Þeirra hafði verið beðið í nokkra daga en Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafnaði þeim alfarið. ÆTLAR AÐ AFNEMA ALRÍKISSKATT Á ELDSNEYTI Trump tilkynnti síðdegis að hann ætli að koma til móts við hækkun á eldsneytisverði með því að afnema alríkisskatt. Það myndi skila sér í um fjögurra prósenta lækkun til neytenda.Írönsk stjórnvöld krefjast þess að Bandaríkin felli niður hafnbann og að öllum átökum linni, ekki síst milli Ísrael og Hezbollah í Líbanon, en staðan í Líbanon versnar dag frá degi.Þá vilja írönsk stjórnvöld ekki opna fyrir umferð um Hormússund nema búið sé að