„Við erum búin að svara því áður í fjölmiðlum að við erum ekki í neinum aðgerðum,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), um yfirlýsingu Icelandair um að margt bendi til þess að flugmenn séu í óformlegum verkfallsaðgerðum.Icelandair hefur þurft að aflýsa tveimur flugferðum síðustu daga og fresta einni því ekki tókst að manna flugstjórnarklefa.Jón Þór segir miður að flugmenn þurfi að svara þessum ásökunum í fjölmiðlum.Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna hafnar því að félagsmenn séu í óformlegum verkfallsaðgerðum tengdum kjaraviðræðum við Icelandair. Flugfélagið segir margt benda til þess.„Það verður líka að gera skíran greinarmun á verkfallsaðgerðum, formlegum eða óformlegum, og svo því hvort einhverjir einstakir einstaklingar séu ekki tilbúnir a