Karlmaður hefur verið dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir sifskaparbrot með því að fara með 15 ára gamla stúlku um borð í fiskiskip þar sem hún dvaldi frá laugardagskvöldi fram yfir miðjan dag á sunnudegi. Skipið lagði til veiða snemma á sunnudagsmorgni og skipstjóra og áhöfn var ekki kunnugt um veru stúlkunnar þar.Foreldrar stúlkunnar höfðu samband við lögregluna í Vestmannaeyjum skömmu eftir miðnætti aðfarnótt 2. apríl 2023. Í ljós kom að hún hafði tekið Herjólf til Landeyjahafnar um kvöldið og keyrt með manninum til Njarðvíkurhafnar og farið um borð í skipið með honum, þar sem hann vann.Samkvæmt dómnum segjast maðurinn og stúlkan hafa mælt sér mót í Landeyjahöfn og stúlkan hafi ætlað með Herjólfi aftur til Vestmannaeyja með síðustu ferð, sem hafi verið felld niður.Maðurinn